Mannauðsdagurinn 2023 var haldinn föstudaginn 6. október í Hörpu. Alls sóttu um 1.000 einstaklingar daginn og hafa gestir aldrei verið fleiri. Við tókum undir okkur alla 2. hæðinna í Hörpunni og voru fyrirlestrarnir í Eldborg og Silfurbergi og glæsileg sýning í Norðurljósum, í Hörpuhorni og á göngum Hörpu. Við þökkum gestum og sýningaraðilum kærlega fyrir komuna.
Næsti Mannauðsdagur verður í Hörpu 4. október 2024.
Fagleg og framsækin
Mannauður er í farabroddi á sviði mannauðsmála. Félagið er vakandi fyrir straumum og stefnum og er þannig faglegur vegvísir í atvinnulífinu.
Þétt tengslanet
Mannauður er fagfélag sem byggir á öflugu tengslaneti þar sem félagsfólk getur sótt sér og veitt öðrum stuðning sem og faglega hvatningu.
Áhrifavaldur
Með faglegri vinnu Mannauðs hefur félagið mótandi áhrif á atvinnulífið og þannig hreyfiafl breytinga.
Öflugt samstarf
Mannauður leggur metnað í samstarf við fagstéttina hérlendis og erlendis, háskólasamfélagið sem og atvinnulífið.