Afhverju ætti ég að ganga í félagið?
-Aðgangur að fróðleik og upplýsingum um það nýjasta sem er að gerast í faginu hverju sinni
-Aðgangur að ýmsum áhugaverðum og mikilvægum gögnum og upplýsingum og tölfræði um ýmis mannauðstengd mál
– Verður hluti af og hefur aðgang að stóru tengslaneti mannauðsfólks úr öllum atvinnugreinum og öllum stærðum fyrirtækja
– Færð aðgang að fræðslu, fundum og öðrum viðburðum félagsins og afslátt af Mannauðsdeginum
– Félagsaðild hefur jákvæð áhrif á ímynd þína
Skilyrði fyrir aðild:
Félagsaðild:
Aðild að Mannauði, félagi mannauðsfólks á Íslandi geta þau fengið sem:
-starfa við mannauðsmál hjá fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi
-sérhæfa sig í ráðgjöf og sölu á mannauðstengdri þjónustu
-eru með menntun og/eða reynslu í mannauðsstjórnun eða tengdum greinum
-eru háskólanemar í mannauðsstjórnun eða tengdum greinum
Sérstaka heiðursaðild fær félagsfólk sem lokið hefur störfum á vinnumarki sökum aldurs.
Heiðursfélagar og háskólanemar í fullu námi greiða ekki félagsgjald.
Umsóknarferli:
Umsóknum um aðild er svarað eins fljótt og kostur er.
Félagsgjöld:
18.500 krónur á ári